Styddu við börn sem búa við stríð

Börn á stríðshrjáðum svæðum þurfa þína hjálp

Sigurgeir Svanbergsson mun synda frá Vestmannaeyjum yfir til Landeyjasanda í júlí næstkomandi til styrktar Barnaheillum en allt safnað fé mun renna til stuðnings börnum sem búa á átakasvæðum. Leiðin sem hann mun synda er rúmlega 12 kílómetrar.
Sigurgeir er enginn nýgræðingur þegar kemur að sjósundi en árið 2021 synti hann þvert yfir Kollafjörð, frá Kjalarnesi yfir til Reykjavíkur. Sundið tók um 9 klukkustundir og var leiðin um 12 kílómetrar. Sundið gekk ekki áfallalaust fyrir sig og lenti Sigurgeir í allskonar hindrunum. Á leiðinni varð fylgdarbáturinn hans vélarvana og synti Sigurgeir því í hringi í klukkutíma og komst í kynni við nokkrar marglyttur. Á meðan beðið var eftir öðrum fylgdarbáti frá Hafsport breyttust straumar í firðinum og í kjölfarið missti hann dýrmætan tíma og lenti því í miklum mótstraumi. Allt er gott sem endar vel og komst þrjóskupúkinn syndandi í land í Bryggjuhverfi.
Hægt er að fylgjast með undirbúningi Eyjasundsins með því að smella hér: https://www.facebook.com/Eyjasund2022
Mikilvægur Stuðningur við Börn á Átakasvæðum
Með tilkomu árása Rússa á Úkraínu er Evrópa að upplifa mesta flóttamannastraum frá tímum seinni heimsstyrjaldarinnar. Meira en helmingur barna í Úkraínu hefur þurft að flýja heimili sín vegna átaka. Fjöldi barna sem búa á átakasvæðum í heiminum hefur aukist mikið undanfarin ár en í dag býr eitt af hverjum sex börnum í heiminum eða 450 milljónir barna á átakasvæðum. Það er 5% aukning frá árinu á undan.
Átök taka grimmilegan toll og geta afleiðingar þeirra haft varanleg áhrif á börn, svo sem á líkamlega, tilfinningalega og vitræna heilsu. Börn á átakasvæðum þurfa aukinn sálrænan stuðning en talið er að um 85% barna á átakasvæðum þurfi virkilega á þeim stuðningi að halda. Einnig hafa átök áhrif á aðgengi barna að mat og hreinu vatni, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Aukin hætta er á því að börn sem búa á átakasvæðum missi úr námi eða neyðist til þess að hætta.
Barnaheill – Save the Children veita mannúðaraðstoð víða um heim til þess að mæta þeirri neyð sem ríkir á átakasvæðum. Barnaheill hafa sett upp svokölluð Barnvæn svæði víða um heim þar sem börn á flótta geta fundið öruggt athvarf til þess að læra eða leika sér. Einnig fá þau sálfræðilegan stuðning frá starfsfólki Barnaheilla. Með því að styðja við Eyjasund Sigurgeirs veitir þú börnum sem búa á átakasvæðum í heiminum stuðning.
